|
|
05.11.2008 11:32:45 / kjutigirl
Ég á afmæli í dag ég á afmæli í dag ég afmæli ég Sigga Lóa ég á afmæli í dag  Ég er 25 ára í dag ég er 25 ára í dag ég er 25 ára ég Sigga Lóa ég er 25 ára í dag  Veeeiiiiiiiiiiiii     Langaði bara aðeins að skrifa smá færslu til að sýna smá líf á þessari blessuðu bloggsíðu hehe   Kveðja Sigga Lóa
»
27.03.2008 17:00:17 / kjutigirl
Páskahelgin hjá okkur var alveg frábærJ Við fórum í sumarbústað í Ölfusborgum. Fórum með Sylvíu, Þresti, Jóni, Guðnýju, Gumma og svo var Hjördís líka smá. Helgin var yndisleg, mikið slakað á, mjög mikið var spilað af póker, triveal (kann ekki að skrifa það) og nýja partý og coJ Vá hvað það er alveg sjúklega gaman að spila póker. Það var 2 kvöld í röð sem að allir settu „all in“ og ég vann allan pottinn sem sagt vann spilið híhíJJ Geggjað gamanJ Svo var náttla borðað fullt af góðum mat, fullt af súkkulaði, mikið hlegið og haft gamanJ Notkunin á heita pottinum var ekki mikil. Það var farið 2 sinnum í hann. Gylfa Þór fannst rosa gaman í fyrstu sumarbústaðaferðinni sinni. Svaf eins og engill á næturna eins og alltafJ Takk allir fyrir alveg frábæra helgi Ólinn minn er náttla í skólanum og alveg nóg að gera sko. Líka mikið að vera í vinnunni hans. Hann er mikið að læra og meira að segja þurftu þeir að læra yfir páskana, sem að mér finnst alveg fáránlegt , þetta á að vera frí. Hann stendur sig vel eins og alltafJ Svo er hann að laga svona smá smotterí sem á eftir að gera í sambandi við nýja eldhúsið okkar og sonnaJ Ég er byrjuð að synda, sem er bara næs. Er samt ekki nógu dugleg við að fara. En í kvöld erum ég og Þórdís að fara að byrja í þreki, og ÆTLUM að halda því við að fara. Ætlum að gera okkur plan, skiptast á að fara í þrek og sund. Ég er ekki að meika að vera lengur svona eins og ég er orðin En ekki meira um það Hlakka til að fara í þrek í kvöldJJJ Á sunnudaginn næsta erum við að fara í fermingu hjá frænda hans Óla. OOOOGGGGGGG á sunnudaginn er Steini Þór brósi minn að koma HEIMJ Vá hvað ég hlakka til að knúsa hann, get bara ekki beðið sko!! Jæja er hætt, hafið það gottJ BæbæJ
»
18.03.2008 12:33:37 / kjutigirl
Í dag 18 mars eigum ég og Ólinn minn 8 ára afmæli  Þetta eru búin að vera yndisleg 8 ár og veit ég að öll okkar ár sem við eigum eftir að vera saman, semsagt til æviloka, munu líka vera alveg æðisleg  Mér langaði bara að kasta smá kveðju til þín ástin mín í tilefni dagsins og svo knúsa ég þig í klessu þegar þú kemur heim í kvöld  Elska þig ástin mín
»
11.03.2008 12:51:49 / kjutigirl
Elsku mamma mín. Ég elska þig af öllu mínu hjarta og sakna þín gífurlega mikið. Ég sit bara hér með tárin í augunum og hugsa um þig. Hugsa um hvað dagurinn fyrir 2 árum var rosalega erfiður og á hverjum degi er ég að hugsa um þig og skoða myndir af þér. Vildi svo mikið að þú værir hér hjá okkur. Við komum til þín á eftir með blóm og kveikjum á kerti.
Þó að endi ævislóð áfram lifa kynni. Þú varst hetja heillin góð hjartans kveðja að sinni.
Þín elskandi dóttir, tengdasonur og ömmustrákur Sigga Lóa, Óli og Gylfi Þór
»
09.03.2008 12:47:33 / kjutigirl
Hæ og hó og dandaladó Ástæðan fyrir því að ég blogga svona lítið er sú að ég bara einfaldlega nenni því ekki hehe Vill frekar vera að knúsa litla gullmolann á heimilinu En héðan er allt frábært að frétta Allt gengur rosa vel og öllum líður vel. Gylfi Þór er reyndar kominn með exem og mér finnst rosalega erfitt að sjá hann með það en held að það sé ekkert að bögga hann. Ákváðum að sleppa ungbarnasundtímanum í morgun útaf exeminu. Já ungbarnasundið er ekkert smá gaman og alveg frábær stund með gullinu okkar Gylfa Þór finnst það líka rosa gaman Steini Þór brósi minn er að koma heim frá Danmörku því að það gengur bara ekkert að fá vinnu þarna úti. Hann var sko kominn með vinnu við smíði og var voða ánægður og við hér heima líka voða ánægð að hann væri kominn með vinnu En neinei svo þegar hann mætir í vinnuna þá segir kallinn við hann að hann fái engan vinnubíl eins og var búið að segja við hann. Steini Þór var sko ekki ánægður með það, sem að ég skil alveg rosalega vel því að ef hann væri í þessari vinnu þá þyrfti hann að vakna alla daga rétt yfir fimm á morgnana og ferðast með strætó og lest í 2-3 tíma og aftur annað eins eftir vinnuna Þannig að mér finnst bara mjög gott hjá honum að hafa sagt kallinum bara að gleyma þessu. Ég hlakka rosalega mikið til að fá hann heim og get bara varla beðið. Hlakka svo til að knúsa hann, höfum aldrei verið svona lengi í burtu frá hvort öðru og það er mjög erfitt því að við erum mjög náin systkin og svo veit ég líka að hann getur ekki beðið eftir að koma heim og knúsa elsku litla nafna sinn En já langaði líka að segja frá því að hann er allur að koma til í blogginu, hann er kominn með nýja síðu. Hún er www.123.is/holmsteinn. Hlakka til að sjá þig brósi minn :* Um síðustu helgi skrapp ég aðeins út á djammið. Það var stelpudjamm í þetta skipti og var það bara alveg klikkað gaman Ég, Guðný, Sylvía, Magga og Hafdís fórum í Splash partý á breiðinni. Það var alveg rosalega gaman og ekkert smá gaman að dansa Það var reyndar ekkert gaman hvað það var ógeðslega mikið af smápíkum þarna og vöðvatröllum í alltöf þröngum bolum og halda að þeir séu eikkað miklir gæjar, bara hallærislegir sko, get ekki sagt annað. Jább það var geggjað gaman þangað til svona um hálf þrjú. Þá var tekið uppá því að stoppa alla tónlist til að hafa einhverja bévítans bjórkeppni. Er ekki verið að grínast, afhverju var ekki byrjað með þetta í staðinn fyrir að hafa þetta rétt áður en partýið var búið. En við stelpurnar ákváðum að yfirgefa svæðið og kíkja smá á Mörkina. Það var náttla lítið annað að sjá þar en Pólverja og gamalt fólk. En við dönsuðum smá og síðan ákvað ég bara að fara heim og stelpurnar komu síðan rétt á eftir mér. Takk æðislega fyrir frábært kvöld stelpur og verðum að gera þetta bráðlega aftur Eins og ég hef sagt áður þá er ég í mömmuklúbb og það er ekkert smá gaman. Við erum orðnar svo margar, eða 15 mömmur held ég, að við erum hættar að hittast heima hjá hvor annarri og erum farnar að hittast á kaffihúsinu. Það er rosa gaman og maður hlakkar alltaf til fimmtudaganna Jæja ég nenni þessu ekki meira núna Bæbæ og hafið það gott
»
02.02.2008 00:20:59 / kjutigirl
Hæhæ vildi bara láta vita af því að við erum búin að skipta um lykilorð á barnalandsíðunni hans Gylfa Þórs. Endilega sendið póst, hringið eða sendið sms til að fá að vita það nýja
»
25.01.2008 16:37:09 / kjutigirl
Spurning 14 er kannksi ekki alveg að fitta þarna inní híhí 1. Hvað kallarðu mig? 2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég? 3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár? 4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug? 5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu? 6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug? 7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit? 8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig? 9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni? 10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna? 11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn? 12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig? 13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust? 14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ? 15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig? 16. Hvernig stráka fíla ég? 17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma? 18. Hvað er mest einkennandi við mig?
»
17.01.2008 10:35:59 / kjutigirl
»
19.12.2007 23:23:32 / kjutigirl
Hæhæ Allt æðislegt er að frétta og allt gengur alveg rosalega vel. Gullið okkar er alveg yndislegur og æðislegur Ég geri færslu mjög fljótlega, nenni því ekki núna Hafið það gott bæbæ Kveðja Sigga Lóa, Óli og Gullmolinn okkar, sem fer alveg að fara að fá nafn (á jóladag)  
»
03.12.2007 16:53:15 / kjutigirl
»
30.11.2007 10:00:48 / kjutigirl
jæja þá er ég kominn heim en Sigga og sæti prinsinn eru á sjúkrahúsinu.Allt gengið vel, Sigga er rosa þreytt og lítið búin að sofa,Þetta er ólýsanleg reynsla og æðisleg tilfinning að fá svona yndislegan dreng í hendurnar. Skrýtið ég orðinn pabbi,pabbi,pabbi næ þessu varla.Fyrstu nóttina gerðum við ekki annað en að hafa yndið uppí hjá okkur og horfa endalaust á hann.Þetta er bara stutt núna því ég er að fara í tvö próf á morgun,læra og læra,þó ég eigi mjög erfitt með það núna.Bráðum koma inn myndir af gullmolanum kveðja Óli nýbakaður faðir. | |
»
28.11.2007 09:31:10 / kjutigirl
»
20.11.2007 11:34:30 / kjutigirl
»
08.11.2007 11:38:00 / kjutigirl
Hæhæ og hó Í dag eru 2 vikur í settan dag hjá okkur. Spenningurinn á heimilinu er alveg bara brjálæðislega mikill híhí Ég er með stöðuga fyrirvaraverki, bara mismikla. Þótt að það sé ekkert gott að fá þessa verki þá finnst mér samt gaman að fá þá því að það er bara merki um það hvað það er stutt eftir reyndar eru þeir farnir að fara líka í bakið sem að er aðeins verra. Ég var að koma úr skoðun núna og ljósmóðirinni fannst alveg æðislegt að heyra að verkirnir væru komnir líka í bakið því þetta væri ekki að gera annað en að hjálpa mér þegar það kemur að stóra deginum Jjjjiiiiiiiiiiii hvað allt er yndislegt og bara verður yndislegra með hverjum deginum Þann 5 nóvember átti ég afmæli og það var bara alveg æðislegur dagur. Fékk alveg flottustu gjafir sem að er hægt að hugsa sér að fá. Daginn áður buðu Þórdís og Guðný mér útað borða í tilefna dagsins og Jenný var líka með. Það var alveg rosalega gaman. Jenný gaf mér sturtusápu og body spray frá White Musk. Mmmmm svoooooo góð lykt Amma kíkti til mín á afmælisdaginn og gaf mér baðmottu og pening og gaf mér líka köku
Ég var búin að tala mikið um það við Óla hvað það væri gott að hafa lazyboystól þegar við munum koma heim með gullið okkar, svona uppá brjóstagjöfina að gera og sonna en svo var ég bara hætt að tala um það því að stofan okkar er nú ekki það stór að ég hélt að það væri bara ekki hægt að vera með sollis stól hér inni. En svo kom Óli heim úr vinnunni þennan dag og ég og Steini skruppum aðeins útí búð og þegar við komum heim úr búðinni þá var ástin mín búin að breyta í stofunni og setja saman og koma fyrir þessum frábæra lazyboystól    Stóllinn er semsagt frá Óla, pabba, Stínu, Ásu, Gylfa og Sollu. Æðislegast í heimi Síðan fórum við í afmælismat til pabba og þar beið mín önnur alveg frábær gjöf Minn yndislegi bróðir rétti mér umslag. Ég opnaði þetta geggjað spennt og var svo bara orðlaus í smá tíma þegar ég sá hvað þetta var. Hann keypti gjafabréf í Olavia og Oliver uppá 40.000.- krónur Jebbs, ekkert smá mikið og bara alveg frábært Vá hvað það á eftir að vera hægt að kaupa mikið og flott handa gullinu okkar fyrir það.
Takk allir saman fyrir alveg frábæran dag og takk alveg æðislega fyrir mig Elska ykkur öll
Eldhúsið okkar gengur alveg rosalega vel. Óli er búinn að klára að tengja rafmagnið og svo kom Einar og hjálpaði honum að gipsa loftið. Svo er búið að gipsa 2 veggi og svo er hann byrjaður að sparsla!! Bráðlega verður hægt að fara að brjóta á milli og ég hlakka geggjað til þegar það verður gert Óli er búinn að vera að vinna eins og brjálæðingur alltaf í þessu. Ekkert smá duglegur sko þessi elska
Í gær þá komu Hanna Stína og Björk í heimsókn til mín. Rosalega gaman að fá þær í heimsókn og var mikið tjattað saman. Takk fyrir komuna esskurnar
Ég er komin í svo mikið jólaskap að ég er alltaf að hlusta á jólalög, búin að skrifa öll jólakort fyrir pabba og fyrir okkur er ég búin að föndra og skrifa á öll jólakortin, nema að skrifa undir þau, ætla aðeins að bíða með það Er svo mikið að spá að byrja að baka smákökur. Er búin að kaupa allt í það en hef ekki treyst mér til að byrja. Ég veit ég er smá klikk híhí
Jæja ég er bara farin að gera eikkað spennó og skemmtilegt, ef ég get og tími þá að standa uppúr flotta lazyboystólnum mínum hehe 
Hafið það súper gott elskurnar. Bæbæ í bili Kveðja Sigga Lóa og Óli ógó spennt að fá gullið sitt og í brjáluðu jólaskapi | |
»
26.10.2007 12:01:12 / kjutigirl
Hæhæ Um síðustu helgi fórum við í skírn til litla sæta gutta hjá Petu og Huga. Hann fékk það fallega nafn Árbjörn Sigurður Á þriðjudaginn fór ég í skoðun og allt lítur vel út. Höfuðið er komið mjög neðarlega, enda finn ég sko alveg fyrir því að það sé þarna. Er líka farin að fá meira af fyrirvaraverkjum. Fer svo aftur í skoðun á miðvikudaginn í næstu viku. Jább bara vika alltaf á milli núna, svooooo stutt eftir Bara rúmar 3 vikur Á miðvikudaginn fór ég á kaffihús með Arndísi og Evu Dröfn. Það var náttla bara gaman að hitta þær, eins og alltaf. Mikið tjattað saman Svo um kvöldið þá fórum ég, Guðný og Stína á tónleika hjá Lúðrasveit Reykjavíkur í Neskirkju. Steini var að spila og stóð sig náttla bara með príði eins og alltaf. Þetta voru alveg rosalega flottir tónleikar og æðislega gaman að hafa farið Fyrir utan ógeðslega pirrandi krakka sem að sátu fyrir framan okkur sem að bara gátu ekki verið kyrr. Þau voru sko ekki þarna til að vera á tónleikunum heldur bara til að tala, hlægja, hreyfa sig og vera pirrandi. Guðný var líka orðin nett pirruð á þessum krökkum og bað þau að sitja kyrr og þá líka lagaðist þetta hjá þeim, allavegana eikkað. Á fimmtudaginn fór ég með Hönnu stínu í bæinn. Fórum í fullt af búðum og náðum við báðar að kaupa eikkað. Ég keypti baðbala fyrir gullið okkar og smá svona smáhluti líka sem að vantaði og þá er líka mest allt komið sem að þarf að kaupa Svo keypti ég mér snúningslak, því að það er farið að vera endalaust erfitt að hreyfa sig í rúminu. En nóttin í nótt var líka bara himnaríki þegar ég þurfti að snúa mér, því að ég fann voða lítið fyrir því, bara næs Við hittum svo Guðnýju í bænum og hún var með okkur restina af bæjarferðinni. Svo þegar átti að fara að halda heim á leið þá voru Óli og Gunni akkúrat búnir að vinna þannig að við ákváðum að fá okkur öll að borða saman áður en haldið væri heim. Svo þegar við vorum komin heim þá fóru strákarnir smá að vinna og læra og við stelpurnar fórum að föndra og mála Ég er loksins byrjuð á scrapbook fyrir litla gullið okkar og það kemur bara alveg rosalega vel út og rosa gaman að gera þetta Í dag er ég svo að fara í kaffi til ömmu því að langamma mín hefði átt afmæli í dag. Er að fara að setja inn myndir af hinu og þessu þannig að endilega kíkið þið á það og hafið það gott um helgina esskurnar Bæbb!!! | |
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|